Vinnusmiðja í frásagnarlist
-sögur og samkennd á þínum vinnustað
Segðu þína sögu -vinnusmiðja er stutt og áhrifarík vinnusmiðja í frásagnarlist þar sem þátttakendur læra að segja sögur úr eigin lífi fyrir framan aðra á skýran, einlægan og áhrifaríkan hátt.
– þín saga, þín upplifun, þitt sjónarhorn.
Vinnusmiðjan gefur þátttakendum verkfæri til að miðla hugmyndum af öryggi, grípa athygli frá fyrstu sekúndu og byggja upp frásögn sem hefur áhrif. Þátttakendur fara heim með eina stutta mótaða sögu, fleiri hugmyndir til framtíðar og aukið sjálfstraust í framkomu og samskiptum.
Hvernig fer vinnusmiðjan fram?
Áhersla er lögð á sögur þátttakenda. Í öruggu og hvetjandi rými fá allir tækifæri til að deila reynslu úr eigin lífi og taka þátt í skapandi og skemmtilegum æfingum sem hrista hópinn saman, efla sjálfstraust og hjálpa til við að losa um feimni og sviðsskrekk.
Í framhaldinu er hverjum og einum leiðbeint í að móta sína sögu og kanna ólíkar leiðir til að styrkja frásögnina og gera hana skýrari og áhrifaríkari.
Fyrir hvern er vinnusmiðjan?
Þetta er snörp en áhrifamikil vinnusmiðja. Hún hentar sérstaklega vel fyrir:
vinnustaði sem vilja dýpka tengsl og efla samskipti
teymi sem vilja byggja upp sterkari liðsheild
einstaklinga sem vilja verða öruggari í framkomu og miðlun
Vinnusmiðjan getur staðið ein og sér eða verið hluti af starfsdegi, fræðsludegi eða teymisvinnu.
Við skoðum sjö meginreglur frásagnarlistarinnar, æfum tjáningu og sviðsframkomu, og hjálpum þér að fjarlægja það sem stendur í vegi fyrir því að sagan þín nái í gegn.
Segðu þína sögu – vinnusmiðja er fyrir öll sem vilja ögra sér, láta röddina heyrast, koma fram af meira sjálfstrausti – og hafa gaman af því.
Leiðbeinendur
Steinar Júlíusson og Unnur Elísabet munu leiða námskeiðið. Þau búa yfir víðtækri reynslu úr sviðslistum, skrifum og sagnalist. Þau eru bæði leikstjórar með ástríðu fyrir sögum. Þau munu skapa öruggt rými þar sem saga hvers og eins fær að vaxa.
Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar.